

Sólarexem
Hvað er sólarexem?
Sólarexem (polymorphic light eruption) er ofnæmisviðbragð húðarinnar við UV-geislum sólarinnar, oftast UVA, en einnig UVB. Þetta er tiltölulega algengt og getur komið fram hjá fólki sem hefur annars engin húðvandamál.
Hver eru einkennin?
- Rauð upphleypt útbrot, oft með smáum bólum sem klæja mikið
- Koma fram á húðsvæðum sem hafa verið útsett fyrir sól t.d. bringu, handleggjum eða fótleggjum
- Hefjast yfirleitt innan nokkurra klukkustunda til allt að 1–2 dögum eftir sól
- Hverfa oftast sjálfkrafa á nokkrum dögum til viku, svo framarlega sem fólk forðast sól
Hverjir fá sólarexem?
- Algengast hjá konum á aldrinum 20–40 ára
- Algengara hjá fólki með ljósa húð (húðgerð I–II)
- Erfðir geta haft áhrif, um 15–46% tilfella eru með ættarsögu um sólarexem
- Byrjar oft á vorin eða í byrjun sumars þegar húðin er ljós og viðkvæm eftir veturinn
Hvers vegna fær fólk sólarexem?
Talið er að UV-geislar breyti efnum í húðinni sem ónæmiskerfið lítur á sem framandi. Þetta kveikir bólgusvar og veldur húðútbrotum. Sólarexem er ekki hættulegt, en getur verið mjög óþægilegt.
Hvernig er best að koma í veg fyrir sólarexem?
- Notaðu sólarvörn með SPF50 daglega, jafnvel í skýjuðu veðri
- Klæddu þig í fatnað sem hylur húðina og notaðu derhúfu eða sólhatt
- Forðastu sólina eins og hægt er, sérstaklega kringum hádegið þegar hún er sem sterkust
- Taktu inn andoxunarefni eins og astaxanthin 1–2 mánuðum fyrir útsetningu fyrir sól eða snemma á vorin
Hvað er til ráða ef þú færð sólarexem?
- Forðastu sólina til að koma í veg fyrir verri einkenni
- Kaldir bakstrar geta dregið úr óþægindum
- Notaðu sterakrem eins og Mildison til að minnka bólguna
- Taktu ofnæmistöflu til að draga úr kláða
Hvenær ætti ég að hafa samband við lækni?
- Ef einkenni versna hratt eða dreifast mikið
- Ef þú færð hita eða slappleika með útbrotunum
- Ef útbrotin hverfa ekki innan 10–14 daga þrátt fyrir meðferð
Heimilislæknar og húðlæknar geta ávísað sterkum sterakremum og í alvarlegum tilvikum er hægt að beita sérstakri ljósameðferð hjá húðlæknum til að herða húðina gegn UV-geislum. Slíkar meðferðir hefjast gjarnan að síðveturs eða snemma að vori, t.d. í febrúar eða mars.
Ef þú ert að glíma við húðvandamál, getur þú sent inn mynd og lýsingu í gegnum Húðvaktina og fengið faglega greiningu á öruggan og skjótan hátt.